sagan okkar
Sagan okkar
Á ferðalögum okkar um heiminn, sérstaklega í Bandaríkjunum, höfum við spilað og kynnst ótal fallegum og einstökum golfvöllum. Ævintýrin hafa verið mörg og hvert þeirra skilið góðar minningar eftir sig.
Í einu slíku ævintýri kynntumst við golfhönskum sem voru allt annað en hefðbundnir. Þeir stóðu strax upp úr bæði í útliti og gæðum og það var eiginlega engin leið til baka.
Þá kviknaði hugmyndin: af hverju ættu þessir hanskar ekki líka heima á Íslandi? Þar sem við elskum að spila golf. Það er ekkert sem jafnast á við golf í kvöldsólinni hérna heima.
Nú, tveimur árum síðar, eru þeir loksins komnir til landsins ásamt fleiri vel völdum vörum frá North Coast Golf.
@northerndunesgolf
Vörumerkið
North Coast Golf
Það var ekki bara flottir hanskar og gæðin sem stóðu uppúr þegar við skoðuðum vörumerkið North Coast Golf Co, heldur var það einnig boðskapurinn á bakvið vörumerkið.
Fyrir hverja selda Bogey the bear vöru er plantað nýju tréi þar sem þörfin er mest. Nú þegar hafa yfir 7.000 tré verið gróðursett.